Vörurnar

Hágæða soðin og pillað kaldsjávarrækja, unnin af alúð úr hreinu hráefni norðurslóða.

Vörurnar okkar

Villt kaldsjávarrækja úr norðurslóðum

Kaldsjávarrækja lifir í köldum sjó þar sem hitastig er yfirleitt á bilinu 0–8°C. Hægur vöxtur í köldu umhverfi gefur rækjunni sitt ferska og milda bragð ásamt náttúrulegum rauðleitum lit. Hún lifir á hafsbotni á 100–700 metra dýpi og nærist á smákrabbadýrum og svifi.

Soðin og pilluð kaldsjávarrækja er soðin í skelinni, pilluð og síðan hraðfryst til að varðveita ferskleika, bragð og gæði vörunnar. Að lokum er bætt við íshúð (glassering) áður en varan er full fryst, til að tryggja hámarks gæði og geymsluþol.

Pandalus borealis er algengasta rækjutegundin í Norður Atlantshafi.  Hún veiðist við strendur Íslands, Grænlands, Kanada og í Barensthafi.     Bragð og áferð getur verið breytilegt eftir veiðisvæðum og árstíma veiðanna.   

Hrein náttúruafurð

Hátt próteinhlutfall

Hátt próteinhlutfall, kjörið fyrir heilbrigða mataræði

Omega-3

Hátt hlutfall ómega-3 fitusýra – góð fyrir hjarta og heila

B12 og Vítamín E

Náttúrulegar uppsprettur B12 og E-vítamíns

Engin fita eða sykur

Lítið sem ekkert af fitu eða viðbættum sykri

Uppruni rækjunnar okkar

Íslandsmið

Pandalus Borealis

Þegar mögulegt er nýtum við ferska íslenska rækju sem veidd er við Íslandsstrendur. Rækjutogarar eru yfirleitt við veiðar í 5–6 daga og afli er unninn strax eftir löndun til að tryggja hámarks ferskleika og gæði. Rækja úr köldum sjó Íslands er talin meðal þeirrar bestu í heimi og er þekkt fyrir ferskt og milt bragð með náttúrulegum sætukeim. Veiðisvæðin eru aðallega norðan Íslands, skammt frá vinnslustöð Dögunar. Einnig eru gjöful mið út af Snæfellsnesi þar sem útgefin er sér kvóti ár hvert. Einstakla bragðgóð rækja af þessu svæði.

Norður-Atlantshaf

Pandalus Borealis

Meginhluti kaldsjávarrækjunnar okkar kemur frá samstarfsaðilum sem stunda veiðar á Barentshafi. Einnig nýtum við hráefni frá öðrum útgerðum á svæðinu auk hráefnis frá kanadískum og grænlenskum miðum eftir framboði hverju sinni.

Kanadísk veiðisvæði

Pandalus Borealis og Pandalus Montaqui

Frá Kanada kaupum við bæði Pandalus Borealis og Pandalus Montaqui.    

Pandalus montagui er önnur rækjutegund en Pandalus borealis og einkennist af aðeins sterkara bragði og stærra höfði. Tegundin er aðallega veidd á kanadískum miðum síðsumars og á haustin og er hluti af vöruframboði okkar þegar framboð leyfir.

Alþjóðlegt vöruframboð

Dögun framleiðir soðna og pillaða frysta rækju í fjölbreyttum pakkningastærðum fyrir markaði um allan heim. Við byggjum á öflugu dreifingar- og flutningskerfi sem tryggir áreiðanlega afhendingu og stöðugt framboð. Við bjóðum sveigjanlegar pakkningalausnir undir vörumerkjum viðskiptavina eða okkar alþjóðlega vörumerki, Iceland Seas. Pakkningar eru í boði frá 200 grömmum upp í 5 kg og um 95% framleiðslu okkar fer á erlenda markaði.

Innlent vöruframboð

Dögun hefur sterka stöðu á íslenskum markaði og býður upp á eigin vörulínu undir vörumerkinu Dögun. Vörur okkar fást í mörgum helstu matvöruverslunum landsins og við þjónustum einnig veitingahús, stóreldhús og aðra aðila á matvælamarkaði með hágæða rækjuvörum.

Stór lúxus rækja
Salat rækja
Úrvals rækja